Handbolti

Nielsen vill gera fimm ára samning við Hvidt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Jesper Nielsen, eigandi danska stórliðsins AG Kaupmannahöfn, hefur boðið markverðinum Kasper Hvidt nýjan fimm ára samning við félagið.

Hvidt staðfesti þetta í samtali við danska fjölmiðla í dag. „Það er rétt að félagið hefur boðið mér þennan samning," sagði Hvidt.

„Og það væri vissulega algjör fásinna af mér að hafna honum," bætti hann við en Hvidt verður fertugur árið 2016, þegar samningurinn myndi renna út.

„Mér líður vel eins og er og líkaminn er í fínu standi. Ég get því vel séð fyrir mér að standa áfram í marki AG næstu fimm árin. Það auðvitað margt sem ég þarf að hafa í huga áður en ég tek endanlega ákvörðun en mér líður virkilega vel hér."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×