Handbolti

Snorri Steinn með sex mörk í tíu marka sigri AG

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Mynd/Heimasíða AG
AG Kaupmannahöfn vann tíu marka útisigur á HC Midtjylland, 37-27. í næst síðustu umferð deildarkeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.

AG er fyrir löngu búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn enda með 14 stiga forskot á AaB Håndbold þegar aðeins einn leikur er eftir fyrir úrslitakeppni.

Snorri Steinn Guðjónsson átti góðan leik með AG-liðinu en hann skoraði sex mörk og var annar markahæsti leikmaður liðsins á eftir Jakob Green sem skoraði sjö mörk. Arnór Atlason lék ekki með AG vegna meiðsla. AG var 19-11 yfir í hálfleik.

Mörk AG í leiknum: Jakob Green 7, Niclas Ekberg og Snorri Steinn Guðjónsson 6, Christian Malmagro 5, Stefan Hundstrup 4, Mikkel Hansen og Jakob Bagersted 3, Rene Toft Hansen 2, Lars Jørgensen 1.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×