Handbolti

Auðvelt hjá AGK - tap hjá Ingimundi og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson.
Danska ofurliðið AGK er komið með 14 stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur á Viborg í kvöld.

Lokatölur 38-23 en Viborg sá aldrei til sólar í leiknum.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir AGK en Arnór Atlason lék ekki með liðinu.

Ingimundur Ingimundarson komst síðan ekki á blað hjá AaB sem tapaði gegn Nordsjælland, 35-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×