Handbolti

Arnór markahæstur í góðum sigri AGK á AaB

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór var sterkur í dag. Mynd/Ole Nielsen
Arnór var sterkur í dag. Mynd/Ole Nielsen
Arnór Atlason átti mjög góðan leik fyrir AG Köbenhavn í dag er það lagði Ingimund Ingimundarson og félaga í AaB í úrslitakeppni danska handboltans.

Arnór skoraði sex mörk í leiknum og var markahæstur ásamt Jacob Green. Leikurinn var jafn og spennandi allt til enda.

AGK er með sex stig í riðli 1 í úrslitakeppninni eða þrem meira en næsta lið. Það lið sem vinnur riðilinn spilar til úrslita um titilinn við sigurvegarann í honum riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×