Sport

Björgvin Páll bikarmeistari með Kadetten í Sviss

Björgvin Páll Gústavsson varð í dag svissneskur bikarmeistari í handbolta þegar lið hans Kadetten sigraði BSV Bern í úrslitaleik 34-30.
Björgvin Páll Gústavsson varð í dag svissneskur bikarmeistari í handbolta þegar lið hans Kadetten sigraði BSV Bern í úrslitaleik 34-30. Mynd/Anton
Björgvin Páll Gústavsson varð í dag svissneskur bikarmeistari í handbolta þegar lið hans Kadetten sigraði BSV Bern í úrslitaleik 34-30. Björgvin varði vel í marki Kadetten á mikilvægum augnablikum en þetta er í sjötta sinn sem Kadetten sigrar í bikarkeppninni.

Eins og þekkist víða í handboltanum þá fór undanúrslitaleikurinn fram í gær en þá unnu Kadetten lið Pfadi Winterthur, 27-26 í hörkuspennandi leik. Björgvin Páll þótti standa sig virkilega vel um helgina en hann er einn af lykilmönnum liðsins.

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn hefur samið við þýska liðið Magdeburg og mun hann leika með því á næstu leiktíð. Kadetten er í efsta sæti í deildarkeppninni sem lýkur um miðjan maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×