Handbolti

Anton og Hlynur dæma undanúrslitleik í Evrópukeppni bikarhafa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Anton og Hlynur.
Anton og Hlynur.
Besta handboltadómarapar landsins, Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, hefur verið úthlutað spennandi verkefni í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa.

Þeir félagar munu dæma leik spænska liðsins San Antonio og franska liðsins Tremblay.

Leikurinn fer fram í Pamplona á Spáni þann 23. apríl.

Verkefnið er enn ein viðurkenningin fyrir þá félaga sem hafa staðið sig vel í verkefnum á erlendri grundu en hafa samt ekki enn fengið tækifæri á lokamóti HM eða EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×