Handbolti

Nielsen: Róbert kemur ekki til AGK

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson.
Hinn yfirlýsingaglaði eigandi danska handboltaliðsins AGK, Jesper Nielsen, hefur nú greint frá því að ekkert verði af því að Róbert Gunnarsson gangi í raðir AGK í sumar.

Jesper hefur áður sagt að Róbert kæmi til félagsins ásamt Ólafi Stefánssyni og Guðjóni Vali Sigurðssyni.

"Hann er of dýr leikmaður fyrir okkur sem stendur," sagði hinn sterkefnaði Nielsen sem hefur hingað til ekki látið peninga standa í vegi fyrir áætlunum sínum.

Hann segir þó að bæði Ólafur og Guðjón Valur komi til AGK í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×