Handbolti

Arnór fór á kostum með AG

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnór Atlason með íslenska landsliðinu
Arnór Atlason með íslenska landsliðinu
Arnór Atlason, leikmaður AG Köbenhavn,  átti frábæran leik í dag þegar lið hans bar sigur úr býtum, 29-26, gegn AaB í úrslitakeppninni í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik.

Arnór gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk og var jafnframt markahæsti leikmaður liðsins. Snorri Steinn Guðjónsson kom einnig við sögu fyrir AG Köbenhavn en hann gerði eitt mark.

Varnarjaxlinn, Ingimundur Ingimundarson,  var sem fyrr í vörn  AaB en hann hefur eflaust tekið vel á landsliðsfélögum sínum. AaB var í fyrra danskur meistari, en möguleikar liðsins á að verja titilinn eru nánast úr sögunni.

AG Köbenhavn stendur vel að vígi og er nánast búið að gulltryggja sig í úrslitaeinvígið.

Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson, leikmenn Rhein-Neckar Löwen, eru báðir orðaðir við AG á næstu leiktíð, en eigandi Rhein-Neckar Löwen er einnig eigandi AG Köbenhavn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×