Handbolti

Sverre og félagar komust í úrslit EHF-bikarsins

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sverre í leik með Grosswallstadt.
Sverre í leik með Grosswallstadt.
Sverre Jakobsson og félagar í þýska liðinu Grosswallstadt komust í dag í úrslit EHF-keppninnar í handbolta.

Þeir lögðu þá ríkjandi meistara Lemgo í síðari leik liðanna. Lokatölur 30-25 en Grosswallstadt vann líka fyrri leikinn, 26-24.

Sverre stóð vaktina í vörninni vel en náði ekki að skora.

Grosswallstadt mætir öðru þýsku liði, Göppingen, í úrslitum en Göppingen sló út spænska liðið Naturhouse la Rioja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×