NBA: Bosh í stuði þegar Miami komst í 2-1 á móti Chicago Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2011 09:00 Chris Bosh var flottur í nótt. Mynd/AP
Miami Heat hélt sigurgöngu sinni áfram á heimavelli í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar liðið vann 98-85 sigur á Chicago Bulls í þriðja leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar. Miami er komið í 2-1 og vantar tvo sigra til viðbótar til þess að komast í lokaúrslitin. Chris Bosh átti frábæran leik í nótt en hann skoraði 34 stig og hitti úr 13 af síðustu 15 skotum sínum eftir að hafa klikkað á þeim þremur fyrstu. „C-B var heitur og þegar einhver er kominn í stuð í okkar liði þá höldum við áfram að fara til hans," sagði LeBron James og Dwyane Wade var líka ánægður með Bosh. „Chris er fagmaður og heldur alltaf áfram. Hann er búinn að spila frábærlega fyrir okkur í þessari seríu," sagði Wade.Derrick Rose reynir hér að verjast Dwyane Wade í nótt.Mynd/APLeBron James var með 22 stig og 10 stoðsendingar og Dwyane Wade skoraði 17 stig og tók 9 fráköst. Carlos Boozer var með 26 stig og 17 fráköst hjá Chicago og Derrick Rose bætti við 20 stigum. Miami tapaði fyrsta leiknum í einvíginu stórt en hefur nú unnið tvo leiki í röð. Heat-liðið á næsta leik einnig á heimavelli þar sem liðið hefur unnið alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni. „Þetta er auðvitað pirrandi. Við vorum ekki nógu ákveðnir í kvöld og þeir fundu aftur leiðina að sigri," sagði Derrick Rose. „Við fráköstuðum vel en lokuðum ekki nógu vel á skotin þeirra," sagði Tom Thibodeau, þjálfari Chicago.
NBA Mest lesið Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Íslenski boltinn Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Handbolti Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn