Íslenski boltinn

Sigur hjá lærisveinum Guðjóns

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Þórðarson.
Guðjón Þórðarson.
Guðjón Þórðarson er búinn að vinna sinn fyrsta leik með BÍ/Bolungarvík. Lærisveinar Guðjóns sóttu Hauka heim í dag og tóku öll stigin með 1-2 sigri.

Tomi Ameobi, bróðir Shola Ameobi hjá Newcastle, og Michael Abnett skoruðu mörk Vestfirðinga í leiknum en Ísak Örn Þórðarson skoraði mark Hauka.

Bæði lið eru með þrjú stig í 1. deildinni eftir leikinn.

Upplýsingar fengnar frá fótbolti.net.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×