Handbolti

Anton og Hlynur dæma í Póllandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Anton og Hlynur.
Anton og Hlynur.
Íslenskir handknattleiksdómarar verða á ferð og flugi í júní þegar leikið er í undankeppni EM hjá karlaliðunum.

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson munu dæma leik Póllands og Portúgal. Leikið er í Poznan þann 12. júní.

Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson munu aftur á móti dæma leik Noregs og Grikklands degi fyrr en sá leikur fer fram í Þrándheimi.

Lokakeppni mótsins fer síðan fram í Serbíu í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×