Handbolti

Norðmenn og Tékkar tryggðu sér sæti á EM í Serbíu

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Svíinn Robert Hedin er þjálfari Norðmanna.
Svíinn Robert Hedin er þjálfari Norðmanna. AP.
Norðmenn tryggðu sér sæti í úrslitum Evrópumeistaramótsins í handbolta á næsta ári með öruggum 31-25 sigri á heimavelli gegn Grikkjum í gær. Robert Hedin þjálfari norska karlalandsliðsins leyfði ungum og lítt reyndum landsliðsmönnum að spreyta sig í leiknum þar sem að Norðmenn voru búnir að tryggja sig inn á mótið. Andre Lindboe var markahæstur í liði Noregs með 9 mörk.

Norðmenn unnu fimm af sex leikjum sínum í riðlinum, Tékkar fylgja Norðmönnum á EM sem fram fer í Serbíu í janúar á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×