Handbolti

Gústaf Adolf aðstoðar Ágúst

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gústaf Adolf Björnsson.
Gústaf Adolf Björnsson.
Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið Gústaf Adolf Björnsson sem aðstoðarþjálfara Ágústs Jóhannssonar hjá A-landsliðið kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu í dag.

Einar Jónsson var áður aðstoðarþjálfari Ágústs en honum er sérstaklega þakkað fyrir hans störf með kvennalandsliðinu í tilkynningunni.

Gústaf Adolf er þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar en hann hefur áður þjálfað hjá Fram, Víkingi og Haukum - bæði karla og kvennalið. Hann hefur einnig starfað sem knattspyrnuþjálfari og stýrði karlaliði Keflavíkur fyrir um áratug síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×