Handbolti

Fram úr leik í Evrópukeppni bikarhafa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Einar Jónsson er þjálfari Fram.
Einar Jónsson er þjálfari Fram.
Kvennalið Fram er úr leik í Evrópukeppni bikarhafa en liðið tapaði tvívegis fyrir ungverska liðinu Alcoa FKC ytra um helgina.

Ungverjarnir unnu þriggja marka sigur í dag, 29-26, eftir að Fram hafði verið með þriggja marka forystu í hálfleik, 13-15.

Staða Framara var þó slæm eftir fyrri leikinn í gær en hann unnu Ungverjarnir með níu marka mun, 31-22.

Bikarmeistarar Fram eru því úr leik í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×