Handbolti

Slæm staða Fram í Evrópukeppni bikarhafa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, leikmaður Fram.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, leikmaður Fram. Mynd/Vilhelm
Fram er nánast úr leik í Evrópukeppni bikarhafa eftir níu marka tap fyrir ungverska liðinu Alcoa FKC ytra í dag, 31-22. Þetta var fyrri viðureign liðanna og telst sem heimaleikur Fram.

Ungverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum en staðan í hálfleik var 19-11, þeim í vil. Leikurinn fór fram í bænum Szekesfehervar og mætast liðin þar aftur á morgun.

Ekki voru komnar upplýsingar um markaskorara á heimasíðu EHF.

Szekesfehervar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×