Handbolti

AG enn taplaust eftir sigur á Bjerringbro/Silkeborg

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Heimasíða AG
AG er með góða forystu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir fjögurra marka sigur á Bjerringbro/Silkeborg í dag, 26-22.

AG hafði eins marks forystu í hálfleik, 12-11, þökk sé frábærri frammistöðu Jannick Green í marki Bjerringbro/Silkeborg.

Gestirnir frá Kaupmannahöfn tóku þó leikinn í sínar hendur í seinni hálfleik og unnu að lokum fjögurra marka sigur. Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu báðir fimm mörk fyrir AG í kvöld og Arnór Atlason þrjú. Aðeins Mikkel Hansen skoraði fleiri mörk en Íslendingarnir - alls sex.

Guðmundur Árni Ólafsson var ekki á meðal markaskorara Bjerringbro/Silkeborg að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×