Umfjöllun: Grindvíkingar unnu öruggan sigur Kristinn Páll Teitsson skrifar 16. október 2011 21:25
Leik Fjölnis og Grindavíkur lauk með 95-73 sigri Grindavíkur í Iceland-Express deild karla í kvöld. Grindavík hefur byrjað tímabilið vel, þeir unnu núverandi tvöfalda meistara, KR í meistarar meistaranna og unnu svo nágranna sína í Keflavík í fyrsta leik deildarinnar. Fjölnismenn töpuðu hins vegar fyrir ÍR í fyrstu umferð og voru því að leita að fyrsta sigrinum á þessu tímabili. Grindvíkingar hófu leikinn vel og náðu strax forskotinu sem þeir áttu eftir að halda út leikinn, Fjölnismenn voru þó aldrei langt frá en flautukarfa Giordan Watson í fyrsta leikhluta var í fyrsta sinn sem Grindvíkingar náðu yfir tíu stiga forskoti. Sigurður Gunnar Þorsteinsson átti afar góðan fyrsta hálfleik þar sem hann setti tíu stig og tók 3 fráköst. Það sama var upp á teningunum í öðrum leikhluta, Grindvíkingar héldu öruggu forskoti út allan fyrri hálfleikinn og með góðum 11-2 kafla komu þeir forskotinu hæst upp í 19 stig. Í hálfleik var staðan 34-49 fyrir Grindavík og voru Sigurður og Ólafur Ólafsson atkvæðamestir hjá Grindavík með 10 stig en í liði Fjölnis var Nathan Walkup stigahæstur með 10 stig. Fjölnismenn hófu þriðja leikhluta vel og pressuðu hátt á Grindvíkingurmenn og náðu að minnka forskotið niður í 8 stig en Grindvíkingar unnu sig aftur inn í leikinn og náðu aftur að byggja upp gott forskot rétt fyrir lok þriðja leikhluta og lauk honum í stöðunni 58-72 fyrir Grindavík. Grindvíkingar héldu svo áfram uppteknu skriði í fjórða leikhluta, þeir héldu Fjölnismönnum í öruggri fjarlægð og náðu mest 22 stiga forskoti. Leikurinn endaði svo með öruggum 76-95 sigri Grindvíkinga. Calvin O'Neal var stigahæstur í liði heimamanna með 22 stig og Nathan Walkup var með 16 stig á meðan Sigurður Gunnar Þorsteinsson var stigahæstur í liði Grindavíkur með 15 stig/11 fráköst og Jóhann Árni Ólafsson var með 13 stig.
Dominos-deild karla Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira