Handbolti

Gunnar Steinn hafði betur gegn Ásbirni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásbjörn í leikm eð FH á síðustu leiktíð.
Ásbjörn í leikm eð FH á síðustu leiktíð.
Gunnar Steinn Jónsson var markahæstur í liði sínu, Drott, sem vann nauman sigur á Ålingsas, 22-21, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Gunnar Steinn skoraði alls fimm mörk í leiknum en Ásbjörn Friðriksson, fyrrum leikmaður FH, skoraði eitt mark fyrir Ålingsas.

Bæði lið eru með tíu stig eftir leikinn en Alingsås er í fjórða sætinu og Drott í því sjötta.

Í Danmörku vann Skjern sigur á Bjerringbro/Silkeborg, 22-21, en Guðmundur Árni Ólafsson er á mála hjá síðarnefnda liðinu. Bjerringbro/Silkeborg er í fjórða sæti með þrettán stig en Skjern í því sjötta með ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×