Körfubolti

Naumur sigur Snæfellinga - myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Snæfell tók í gær stórt skref í átt að undanúrslitum Lengjubikarkeppni karla eftir sigur á Stjörnunni í Garðabænum í gær, 95-94.

Ólafur Torfason tryggði Snæfelli sigurinn af vítalínunni á lokasekúndu leiksins en með sigrinum komst liðið í fjögur stig í C-riðli.

Snæfell náði meira en 20 stiga forystu um tíma í leiknum en var næstum búinn að kasta frá sér sigrinum á lokamínútum leiksins.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á staðnum og tók þessar myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×