Handbolti

Einar Andri: Allir leikmenn spiluðu vel í dag

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Mér datt aldrei í hug að við myndum vinna 13 marka sigur á Akureyri í dag,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld.

FH rústaði Akureyri 34-21 í 16-liða úrslitum í Eimskipsbikarkeppni karla í handknattleik, en leikurinn fór fram í Kaplakrika.

„Strákarnir spiluðu frábærlega í dag og það gekk nánast allt upp. Allir leikmenn liðsins spiluðu vel og börðust vel fyrir hvern annan“.

„Menn voru agaðir og hjálpuðust að við að finna góð færi. Það hefur verið mikill stígandi hjá liðinu alveg frá því að við töpuðum í fyrstu umferð og ég er ánægður með þá stöðu sem liðið er komið í“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×