Formúla 1

Heimsmeistari nýliði hjá Williams

Pastor Maldonado varð að fylgjast með í dag, en fær að keyra Williams bílinn á morgun.
Pastor Maldonado varð að fylgjast með í dag, en fær að keyra Williams bílinn á morgun. Charles Coates/LAT Photographic

Pastor Maldonado verður liðsmaður Williams sem ökumaður í ár ásamt Rubens Barrichello, en fyrrnefndi kappinn er frá Venúzuela og varð heimsmeistari í GP 2 mótaröðinni í fyrra. Williams er við æfingar á nýjum bíl á Valencia brautinni á Spáni næstu daga og 2011 bíllinn var kynntur til sögunnar.

"Maður veit aldrei hvað gerist fyrr en byrjað er að prófa bílanna og miða þá við keppinautanna. En við erum bjatsýnir. Við teljum að við séum með góðan bíl, en við sjáum heildarmyndina betur á næstu vikum", sagði Sam Michaels liðsstjóri Willams um nýja ökutæki Williams.

Barrichello sem var með Williams í fyrra ekur fyrsta æfingadaginn á Williams bílnum, en Maldonado mun einnig aka bílnum á morgun. Williams nýtur m.a. stuðnings frá orkufyrirtæki í heimalandi Maldonado, en talið er að kappinn hafi komið með verulegt fjármagn inn í liðið í formi auglýsinga.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×