Handbolti

Kvaddi Sviss með viðeigandi hætti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson vann alla þá titla sem hægt var að vinna í svissneskum handknattleik og það tvö ár í röð.
Björgvin Páll Gústavsson vann alla þá titla sem hægt var að vinna í svissneskum handknattleik og það tvö ár í röð. Fréttablaðið/Vilhelm
Björgvin Páll Gústavsson varð í gær svissneskur meistari með Kadetten Schaffhausen, annað árið í röð. Reyndar unnu Björgvin og félagar alla titlana sem í boði voru í vetur, rétt eins og í fyrra.

„Það kom ekkert annað til greina en að klára þetta með stæl," sagði Björgvin við Fréttablaðið en Kadetten vann í gær öruggan sigur á Pfadi Winterthur, 38-25, í þriðja úrslitaleik liðanna um titilinn. Kadetten vann því rimmuna örugglega, 3-0.

Björgvin stóð sig frábærlega í öllum þremur leikjunum og ekki síst í gær þegar hann varði 21 skot, þar af bæði vítaskotin sem andstæðingarnir fengu í gær.

„Þetta er mjög viðeigandi og gott að geta kvatt liðið með þessum hætti," segir Björgvin en hann gengur nú í sumar til liðs við þýska stórliðið Magdeburg eftir tveggja ára dvöl í Sviss.

„Við héldum dampinum frá því í fyrra þar sem við unnum einnig allt sem var í boði auk þess sem við komust í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa. Í ár sýndum við svo að við erum með sterkustu liðum Evrópu þegar við vorum nálægt því að slá Montpellier út í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar."

Björgvin segir að hann hafi náð öllum þeim markmiðum sem hann setti sér áður en hann flutti til Sviss.

„Ég ætlaði að fá að spila mikið og öðlast reynslu í Evrópukeppnum. Ég hef sýnt meiri stöðugleika sem var eitthvað sem ég þurfti og tel að ég sé tilbúinn fyrir næsta skref, sem er að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Það er gott að geta tekið það skref með félagi eins og Magdeburg," sagði Björgvin.

Hann kveður því sáttur og glaður við Schaffhausen. „Þetta er geggjaður staður og hér var frábært að vera. Þetta er miklu betri deild en ég hélt. Liðið er nú komið á háan stall og það var gaman að fá að taka þátt í því að koma liðinu þangað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×