Körfubolti

Hrafn Kristjánsson þjálfari KR: KR leitar að nýjum leikstíl

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Velkominn í KR Hrafn og Emil við undirritunina í gær.
Velkominn í KR Hrafn og Emil við undirritunina í gær. Fréttablaðið/Hag
Bakvörðurinn Emil Þór Jóhannsson gekk í gær frá tveggja ára samningi við KR. Emil hefur verið lykilmaður í liði Snæfells undanfarin tvö tímabil.

Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, er ánægður með viðbótina. Hann segir að Emil geti fyllt í skarð Pavels Ermolinskij í varnarleiknum og geti enn bætt sig mikið sóknarlega.

„Það er mjög gott að fá Emil inn. Þetta verður svolítið púsluspil hjá okkur. Við misstum að mínu mati þrjá bestu bakverði deildarinnar í fyrra. Þeirra hæfileikar og eiginleikar skópu okkar leikstíl. Það má búast við því að KR verði að finna sinn stíl fram eftir tímabili,“ segir Hrafn.

KR gekk nýlega frá samningi við Bandaríkjamanninn DeWayne Reed og Hrafn segir að félagið muni bæta við sig Bandaríkjamanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×