Körfubolti

Jón Arnór um nýja þjálfarann: Agi sem hefur ekki verið áður

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og Ólafur Ólafsson.
Jón Arnór Stefánsson og Ólafur Ólafsson. Mynd/Hag
Jón Arnór Stefánsson er í landsliðshópi Peter Öqvist, landsliðsþjálfara karla í körfubolta, fyrir komandi Norðurlandamót í Sundsvall í Svíþjóð sem hefst um næstu helgi. Jón er ánægður með nýja þjálfarann.

„Við erum með okkar sterkasta lið og höfum verið að æfa mjög vel. Við erum í nýju prógrammi með nýjum þjálfara og höfum verið að gera þetta eins og maður þekkir þetta að utan. Við höfum verið að æfa tvisvar á dag og erum með gott styrktarprógramm,“ sagði Jón Arnór.

„Við erum mjög samstilltir og hann er að koma með sitt skipulag og aga inn í þetta sem hefur ekki verið áður. Við erum mjög vel stemmdir,“ sagði Jón Arnór. Fyrsti leikurinn er á móti Svíum á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×