Miklir vinir en voru þó aldrei sammála um hlutina 5. ágúst 2011 17:30 Múlastofa Tileinkuð bræðrunum Jónasi og Jóni Múla Árnasonum.
Söngleikur Vopnfirsk ungmenni taka óspart þátt í dagskránni. Einu sinni á ágústkvöldi er viðeigandi nafn á menningarhátíð tengdri bræðrasetrinu Múlastofu á Vopnafirði sem er tileinkuð Jóni Múla og Jónasi Árnasonum. „Fjölskylduskemmtunin annað kvöld verður í samkomuhúsinu Miklagarði,“ byrjar Magnús Már Þorvaldsson, talsmaður menningarhátíðarinnar Einu sinni á ágústkvöldi mál sitt. „Á skáldakvöldi sem Valgeir Skagfjörð stjórnar verður umfjöllun um þá bræður, Jónas og Jón Múla. Þeir voru, eins og margir vita, alveg sérstakir karakterar, vinstri menn fram í fingurgóma en dáðu samt ýmislegt amerískt, eins og Jón Múli djassinn. Svo voru þeir miklir vinir en ef þeir komu einhvers staðar saman fram í viðtölum þá voru þeir aldrei sammála um hlutina, heldur voru farnir að rífast áður en spyrlinum tókst að stoppa þá af. Í dagskránni verður þátttaka ungmenna veruleg og svo hljómsveitar sem nefnist Batteríið og er skipuð vopnfirskum körlum á besta aldri. Ungmenni sem hafa verið í listasmiðju hjá Valgeiri frá því á mánudag verða með leiksýningu sem lög og textar bræðranna falla inn í. Það er svo yndislegt hvað krakkar geta gert á fáum dögum.“ Í framhaldi af skáldakvöldinu verða tónleikar með sveit Eyþórs Gunnarssonar í Miklagarði en hann var uppeldissonur Jóns Múla. Auk Eyþórs skipa sveitina þau Ellen Kristjánsdóttir söngkona, Tómas R. Einarsson bassaleikari, Óskar Guðjónsson saxafónleikari og Scott MacLemore trommuleikari. „Þetta verður tónlistarveisla af bestu gerð þar sem sveitin mun flytja verk eftir þá bræðurna, líkt og hún gerði 31. mars í Salnum í Kópavogi, þann dag sem Jón Múli hefði orðið níræður,“ lýsir Magnús Már. En fleiri atriði eru á hinni vopnfirsku menningarhátíð í ár en dagskrá tengd þeim bræðrum. Erluhátíð er til dæmis í Vopnafjarðarskóla milli klukkan 13 og 15 helguð hinni vopnfirsku Guðfinnu Þorsteinsdóttur sem tók upp skáldanafnið Erla. Það er Erlusjóður sem stendur að dagskránni sem Magnús Már fullyrðir að verði spennandi. „Margir koma þarna fram og á eftir eru kaffiveitingar í anda gamla sveitastílsins. Svo vettvangsferð um Hofsdalinn,“ segir hann. Léttmessur hafa verið hluti af hátíðinni undanfarin ár og svo verður einnig nú. Hún verður á morgun klukkan 14. „Nú er komið að Edgari Smára Atlasyni og Óskari Einarssyni að sjá um söng og séra Brynhildi, sem er prestur Langanesbyggðar, að leiða stundina,“ segir Magnús Már og heldur áfram. „Þetta eru ávallt skemmtilegar messur þar sem fólk syngur með og sagðar eru skemmtilegar sögur sem að öllum jafnaði eru ekki í kirkjulegum athöfnum. Þess vegna er léttmessuheitið ágætt.“ gun@frettabladid.isMagnús Már Þorvaldsson Er fulltrúi hjá sveitarfélaginu og talsmaður menningarhátíðarinnar.
Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira