Handbolti

Ingimundur: Get verið fljótur að bæta aftur á mig kílóum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingimundur Ingimundarson hefur tekið af sér nokkur kíló að undanförnu.
Ingimundur Ingimundarson hefur tekið af sér nokkur kíló að undanförnu. Fréttablaðið/Anton
Ingimundur Ingimundarson, leikmaður Fram og íslenska landsliðsins, hefur verið duglegur við að létta sig síðustu vikur og mánuði svo eftir því var tekið. Hann sneri aftur heim til Íslands úr atvinnumennskunni í sumar og hefur lagt ríka áherslu á að halda sér í sem allra bestu formi.

„Ég hef æft vel í sumar og haust og er í fínu standi. Ég er kannski búinn að æfa of mikið því Guðmundur er búinn að tuða yfir því hvað ég er orðinn léttur,“ segir Ingimundur og brosir.

„En þó svo að ég sé léttari en ég hef verið að undanförnu held ég mínum styrk. Ég hef allavega verið að glíma við afturendann á Kára á hverri æfingu og það er ekkert smáræði. Hann er öflugur í blokkeringunum og harður af sér,“ segir Ingimundur sem æfði með íslenska landsliðinu í síðustu viku.

„En svo ég tali af fullri alvöru þá finnst mér þetta virka vel fyrir mig og ef nauðsyn krefur þá er ég fljótur að bæta á mig nokkrum kílóum. Ég á frekar auðvelt með það.“

Hann segir að það hafi aldrei verið ætlunin að slaka eitthvað á eftir að hann kom aftur til Íslands. „Ég ætla mér að halda áfram í handbolta af fullum krafti. Ég æfi mikið aukalega enda vissi ég að ég þyrfti að halda mér á tánum til að detta ekki úr landsliðinu og gera áfram góða hluti með því,“ segir Ingimundur en bætir við að það hafi verið mikil breyting fyrir sig að koma aftur heim.

„Hérna heima er mikið um létta leikmenn, snögga og tekníska, en ytra er maður helst að glíma við tveggja metra menn sem beita sér á annan hátt. Það á enginn fast sæti í landsliðinu og ég þarf að vera í toppformi hér heima til að halda sæti mínu þar.“

Hann segist vera opinn fyrir því að fara aftur út í atvinnumennsku eftir tímabilið. „Ég get ekki sagt að ég stefni beinlínis að því að komast aftur út en ég vil halda mér í góðu standi ef eitthvað áhugavert kemur upp. En mér líður líka mjög vel heima. Það gefur mér mikið að vera nálægt fjölskyldu og vinum, auk þess sem æfingamenningin í handboltanum hér heima er mjög góð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×