Formúla 1

Allir bílar á æfingu merktir stuðningskveðju til Kubica

Lotus Renault, Vitaly Petrov líðsfélaga Robert Kubica með stuðningskveðju á pólsku til Kubica á Jerez brautinni í dag.
Lotus Renault, Vitaly Petrov líðsfélaga Robert Kubica með stuðningskveðju á pólsku til Kubica á Jerez brautinni í dag. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Öll Formúlu 1 lið á æfingum á Jerez brautinni á Spáni hafa merkt í dag bíla sína með stuðningskveðju til handa Robert Kubica, sem meiddist í rallkeppni á sunnudaginn og verður frá keppni um ótilgreindan tíma. Liðin æfa á brautinni til sunnudags. Bílarnir eru merktir "Szybkiego powrotu do zdrowia Robert", samkvæmt frétt á autosport.com, sem gæti útlagst á íslensku, "Náðu bata fljótt Robert". Kubica hefur verið færður úr gjörgæslu og á venjulega deild. Hann fer í aðgerð á morgun og læknar eru að skoða að ljúka þeim aðgerðum sem þarf á einum deg í stað tveggja. Íalskir fjölmiðlar segja að hann gæti útskrifast af spítalanum í lok næstu viku, ef allt gengur að óskum. Þjóðverjinn Nick Heldfeld mun um helgina prófa Lotus Renault sem hugsanlegur staðgengill Kubica, en Brasilíumaðurinn Bruno Senna mun einnig keyra bíl liðsins, en hann er varaökumaður. Yfirmenn liðsins ætla að sjá hvernig ökumönnunum gengur á æfingunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×