Grindvíkingar áfram á sigurbraut | Páll Axel með á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2012 20:46 Páll Axel Vilbergsson. Mynd/Stefán
Grindvíkingar gefa ekkert eftir í Iceland Express deild karla í körfubolta og eru áfram með sex stiga forskot á toppnum eftir 34 stiga heimasigur á Fjölni í kvöld, 107-73. Grindavíkurliðið hefur nú unnið fimm deildarleiki í röð og alls tólf af þrettán deildarleikjum sínum í vetur. Páll Axel Vilbergsson lék sinn fyrsta leik síðan að hann meiddist í úrslitum Lengjubikarsins í nóvemberlok. Páll Axel skoraði 17 stig á aðeins 8 mínútum í leiknum. J´Nathan Bullock var me 26 stig og 17 fráköst hjá Grindavík. Páll Axel var annars stigahæstur og Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði síðan 14 stig. Björgvin Hafþór Ríkharðsson skoraði mest fyrir Fjölni eða 19 stig og Arnþór Freyr Guðmundsson var með 16 stig. Grindvíkingar tóku frumkvæðið í upphafi leiks og náðu síðan sjö stiga forskoti, 15-8, með því að að skora sjö stig í röð. Grindavík var 27-19 yfir þegar 80 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhlutanum en Fjölnir náði að minnka muninn í 29-25 fyrir lok hans. Grindavík vann fyrstu fimm mínútur annars leikhlutans 15-4 og náði fyrir vikið fimmtán stiga forskoti. Fjölnismenn náðu að minnka muninn niður í níu stig, 50-41, fyrir hálfleik. Grindvíkingar stungu endanlega af í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu 31-16 og voru því 24 stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 81-57. Fjórði leikhlutinn var því í raun formsatriði fyrir Grindavíkurliðið.Grindavík-Fjölnir 107-73 (29-25, 21-16, 31-16, 26-16, 0-0)Grindavík: J'Nathan Bullock 26/17 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 17/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Giordan Watson 11/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/10 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 9, Ryan Pettinella 9/7 fráköst, Þorleifur Ólafsson 5/5 stoðsendingar, Björn Steinar Brynjólfsson 5, Ólafur Ólafsson 1.Fjölnir: Björgvin Hafþór Ríkharðsson 19/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 16, Nathan Walkup 13/9 fráköst, Calvin O'Neal 13, Jón Sverrisson 10/7 fráköst, Trausti Eiríksson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Freyr segir belgíska blaðið ljúga Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Sjá meira