Handbolti

Mamelund á leið til Montpellier

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Norska skyttan Erlend Mamelund ætlar að fara frá Haslum í sumar og ganga til liðs við Montpellier í Frakklandi í sumar.

„Þetta er frábært félag sem vill vinna Meistaradeildin," sagði Mamelund í samtali við TV2 í heimalandinu. Hann sneri aftur heim eftir að hafa spilað með Nordhorn og Flensburg í Þýskalandi til að setjast á skólabekk.

„Ég hef haft það mjög gott í Haslum síðustu tvö árin og er erfitt að fara nú. En það er gaman að takast á við nýjar áskoranir," sagði Mamelund.

Hann átti frábæran leik gegn Íslandi á EM í Serbíu en dugði sem betur fer ekki til. Noregur sat svo eftir í riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×