Handbolti

Guðjón Valur aftur í liði vikunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Mynd/Vilhelm
Aðra vikuna í röð er Guðjón Valur Sigurðsson í liði vikunnar í Meistaradeild Evrópu. Hann þótti standa sig vel í stórleik AG Kaupmannahafnar og Kiel.

Leiknum lyktaði með jafntefli, 24-24, en Guðjón Valur var markahæsti leikmaður AGK með átta mörk. Hann gengur einmitt til liðs við Kiel í sumar en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Hann var einnig í liði umferðarinnar í síðustu viku en þá vann AGK sigur á Montpellier í Frakklandi, 31-27. Þá var Guðjón Valur einnig markahæstur með átta mörk.

Lið vikunnar:

Guðjón Valur Sigurðsson, AGK

Fredrik Larsson, Sävehof

Peter Kukucka, Kadetten Schaffhausen

Gabor Ancsin, Pick Szeged

Zlatko Horvat, Croatia Zagreb

Jesper Nöddesbo, Barcelona

Niklas Landin, Bjerringbro/Silkeborg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×