Handbolti

Stórt tap hjá Team Tvis í Danmörku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Rut Jónsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Pjetur
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir komust báðar á blað þegar að lið þeirra, Team Tvis Holstebro, tapaði nokkuð stórt fyrir FC Mitdjylland í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta var aðeins þriðja tap Team Tvis á leiktíðinni en með sigri hefði liðið komist upp fyrir Viborg og á topp deildarinnar. Liðið er í öðru sæti með 31 stig, rétt eins og Viborg, en Midtjylland er í þriðja sætinu með 28 stig.

Eins og tölurnar bera með sér var sigur Midtjylland öruggur en staðan í hálfleik var 14-8. Þórey Rósa og Rut skoruðu báðar eitt mark í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×