Íslenski boltinn

KR vann dramatískan sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö fyrir KR í kvöld.
Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö fyrir KR í kvöld. Mynd/Anton
Kjartan Henry Finnbogason tryggði KR nauman sigur á Víkingi frá Ólafsvík í Lengjubikarkeppni karla í kvöld. Hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu uppbótartíma leiksins.

Thomas Luba og Guðmundur Steinn Hafsteinsson komu Víkingum yfir í fyrri hálfleik en Kjartan Henry minnkaði muninn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þorsteinn Már Ragnarsson, fyrrum leikmaður Víkings, jafnaði svo metin fyrir KR á lokmamínútu venjulegs leiktíma áður en Kjartan Henry tryggði KR sigur sem fyrr segir.

KR hafði áður tapað fyrir Fram í Lengjubikarnum en fékk sín fyrstu stig í keppninni í kvöld.

Pétur Viðarsson skoraði eina markið í 1-0 sigri FH á Fjölni í kvöld og þá vann Þór frá Akureyri öruggan 4-0 sigur á Grindavík í kvöld. Kristinn Þór Björnsson skoraði tvö fyrri Þór og þeir Jóhann Helgi Hannesson og Ingi Freyr Hilmarsson eitt mark hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×