Handbolti

Arnór vongóður um að spila innan fárra vikna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór Atlason, sem meiddist í leik AG og Bjerringbro/Silkeborg í gær, segist stefna á að spila með liði sínu gegn Sävehof í Meistaradeild Evrópu síðar í mánuðinum.

Meiðsli aftan í læri tóku sig upp og því ljóst að Arnór þarf að hvíla á ný. „Nú verð ég bara að bíta á jaxlinn og leggja allt kapp á að ná leiknum [gegn Sävehof] eða næsta á eftir," sagði hann við danska fjölmiðla í gær.

„Þetta er auðvitað svekkjandi en við héldum í alvörunni að ég væri orðinn leikfæri," sagði Arnór sem meiddist á upphafsmínútum leiksins.

Steinar Ege, markvörður, verður hins vegar mun lengur frá þar sem hann sleit hásin í leiknum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×