Handbolti

Þórir pólskur deildarmeistari með Kielce

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir í leiknum í gær.
Þórir í leiknum í gær. Mynd/Heimasíða Kielce
Lið landsilðsmannsins Þóris Ólafssonar, Kielce, varð í gær pólskur deildarmeistari í handbolta eftir sigur á erkifjendum sínum í Wisla Plock í uppgjöri toppliða deildarinnar.

Þórir skoraði tvö mörk í leiknum en Kielce vann fjögurra marka sigur, 26-22, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik.

Þórir er á sínu fyrsta ári með Kielce en liðið hefur nú tryggt sér heimaleikjarétt út alla úrslitakeppnina. Liðið er þar að auki komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og mætir þar slóvenska liðinu Cimos Koper.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×