Handbolti

Geir tekur við Bregenz í Austurríki

Austurríska handknattleiksfélagið Bregenz er augljóslega hrifið af íslenskum þjálfurum því það hefur nú ráðið Geir Sveinsson sem þjálfara liðsins. Geir tekur við liðinu af Martin Liptak.

Dagur Sigurðsson var þjálfari félagsins á árum áður og náði frábærum árangri með liðið. Dagur mælti með Geir, vini sínum, í starfið.

Geir þjálfaði síðast lið Gróttu en hann hefur verið inn og út úr þjálfarabransanum á síðustu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×