Körfubolti

Allt á suðupunkti fyrir Vesturlandsslaginn | Oddaleikur í Fjósinu

Í kvöld fer fram oddaleikur á milli Skallagríms úr Borgarnesi og ÍA frá Akranesi um hvort liðið leikur í Iceland Express deild karla í körfuknattleik á næsta tímabili. Staðan er 1-1 en báðir leikirnir hafa verið æsispennandi og heimaliðin hafa haft betur í báðum leikjum. Pálmi Blængsson formaður körfuknattleiksdeildar Skallagríms var í viðtali í Boltanum á X-977 í morgun þar sem að Valtýr Björn Valtýsson ræddi við hann um Vesturlandsslaginn sem hefst kl. 19.15 í kvöld.

Pálmi býst við að hátt í 1000 áhorfendur mæti í íþróttahúsið í Borgarnesi en um 750 áhorfendur voru á fyrsta leiknum s.l. föstudag.

Fylgst verður með gangi mála í Borgarnesi á Vísi og verður bein textalýsing frá staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×