Fótbolti

Körfubolti og Meistaradeildin í aðalhlutverki í Boltanum á X977

Meistaradeildin í knattspyrnu og körfubolti verða aðalumræðuefni í Boltanum í dag á X-inu 977 á milli 11-12. Valtýr Björn Valtýsson er umsjónarmaður þáttarins í dag. Hann fær formann Körfuknattleiksdeildar Skallagríms í heimsókn en í kvöld fer fram oddaleikur á milli Skallagríms og ÍA um laust sæti í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Meistaradeildin verður einnig áberandi þar sem Heimir Guðjónsson sérfræðingur Stöðvar 2 sport fer yfir leiki kvöldsins.

Pálmi Blængsson formaður kkd Skallagríms verður í viðtali en gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum á Vesturlandi og mikil stemning í gangi.



Hlustaðu á X977 með því að smella hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×