Handbolti

Danir lentu sjö mörkum undir en náðu jafntefli við Þjóðverja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikkel Hansen í leiknum í dag.
Mikkel Hansen í leiknum í dag. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Evrópumeistarar Dana gerðu 25-25 jafntefli í vináttulandsleik i Flensburg í dag en liðin mætast síðan aftur á morgun. Þjóðverjar voru sex mörkum yfir í hálfleik, 16-10, og komst mest sjö mörkum yfir í byrjun seinni hálfleiks.

Danska liðið fór þá í gang og breytti stöðunni úr 17-10 í 21-21. Danir voru síðan 25-24 yfir á lokamínútunum en Þjóðverjar náðu að tryggja sér jafnteflið í lokin.

Uwe Gensheimer skoraði sex mörk fyrir Þjóðverja en hjá Dönum skoraði Michael Knudsen sjö mörk og Mikkel Hansen var með sex mörk. Carsten Lichtlein var líka í miklu stuði í marki Þjóðverja fram eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×