Handbolti

Umfjöllun: Japan - Ísland - 30-41 | Íslendingar komnir á Ólympíuleikana

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Mynd/Valli
Íslendingar eru komnir á Ólympíuleikana í Lundúnum sem verða haldnir í sumar eftir frábæran ellefu marka sigur, 30-41 á Japönum. Leikurinn í dag var algjör úrslitaleikur fyrir bæði lið og var greinilegt að strákarnir ætluðu sér ekki að missa af þessu tækifæri.

Íslendingar byrjuðu leikinn með miklum látum og tóku strax öll völd á vellinum. Íslendingar voru komnir með átta marka forystu um miðbik fyrri hálfleiksins og allt stefndi í stórsigur okkar manna. Japanir tóku aðeins við sér á næstu mínútum og náðu að minnka muninn lítillega en við tókum fljótlega við okkur aftur og leiddum með níu mörkum, 11-20, þegar flautað var til hálfleiks. Stórkostlegur fyrri hálfleikur hjá íslensku strákunum.

Íslendingar bættu enn frekar við í upphafi seinni hálfleiksins og gjörsamlega völtuðu yfir Japani á næstu mínútum. Íslendingar voru komnir með þrettán marka forystu þegar hálfleikurinn var hálfnaður og stórsigur okkar manna í augnsýn. Íslendingar slökuðu þó aðeins á klónni á næstu mínútum en sigldu að lokum öruggum ellefu marka sigri, 30-41, í höfn.

Allt liðið spilaði vel í leiknum og geta strákarnir verið stoltir af frammistöðu sinni í leiknum. Vörnin og markvarslan var öflug og missti undirritaður töluna á öllum hraðaupphlaupsmörkum okkar í leiknum.

Sóknarleikurinn var einnig virkilega góður og ekki oft sem liði tekst að skora fjörutíu og eitt mark í einum og sama leiknum. Ólafur Stefánsson stýrði sóknarleiknum eins og herforingi og skoraði sjö mörk ásamt því að gefa margar stoðsendingar. Guðjón Valur stóð einnig fyrir sínu í sóknarleiknum en maður leiksins var hinsvegar Róbert Gunnarsson, en hann var óstöðvandi inn á línunni og skoraði níu mörk.


Tengdar fréttir

Guðmundur: Ég er afskaplega ánægður og stoltur

"Ég er afskaplega ánægður og stoltur. Við erum að spila fyrir hönd þjóðarinnar og erum ánægðir að hafa náð þessum stóra áfanga. Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var stórkostlegur og lagði hann grunninn að sigrinum. Við spilum frábæran varnarleik sem við höfum stundum náð upp í okkar leik og refsum við þeim grimmilega með hraðaupphlaupsmörkum,” sagði Guðmundur Guðmundsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik eftir að liðið tryggði sér farseðilinn á ÓL í London með 41-30 sigri gegn Japan í Króatíu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×