Handbolti

GUIF í góðum málum

Kristján Andrésson.
Kristján Andrésson.
Lið Kristjáns Andréssonar, GUIF, er einum leik frá því að komast í úndanurslit sænska handboltans. GUIF lagði Malmö, 29-31, öðru sinni í dag og er 2-0 yfir i rimmu liðanna.

Báðir leikir liðanna voru hörkuspennandi en GUIF vann fyrri leikinn einnig með tveggja marka mun, 32-30.

GUIF var einu marki undir í hálfleik en drengirnir hans Kristjáns voru skrefi á undan í síðari hálfleik. Malmö lagði allt undir til þess að jafna leikinn í lokin og tóku meðal annars markvörð sinn af velli.

Allt kom fyrir ekki og GUIF fagnaði flottum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×