Fyrirliðabandið tekið af Fannari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. apríl 2012 11:40 Fannar Freyr í leik með Stjörnunni. Mynd/Anton
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur ákveðið að Fannar Helgason verði ekki fyrirliði liðsins í ótilgreindan tíma vegna atviks sem átti sér stað í leik gegn Keflavík á dögunum. Fannar var gefið að sök að hafa veitt Val Orra Valssyni, leikmanni Keflavíkur, olnbogaskot í oddaleik liðanna á fimmtudagskvöldið. Stjarnan vann leikinn í framlengingu og mætir Grindavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum í kvöld. Keflvíkingar sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þess var óskað að forráðamenn Stjörnunnar myndu taka á þessu máli innan félagsins. Félagið ætlaði að bíða með að senda kæru inn til KKÍ þar til Stjarnan myndi bregðast við atvikinu sem átti sér stað í leiknum. Stjörnumenn hafa nú sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar harmar það atvik sem átti sér stað í oddaleik Stjörnunnar og Keflavíkur, milli Fannars Helgasonar, leikmanns Stjörnunnar og Vals Valsonar leikmanns Keflavíkur. Atvikið átti sér stað þegar leikmennirnir börðust um boltann og var óviljaverk af hálfu leikmanns Stjörnunnar. Hins vegar lítur deildin þetta mál alvarlegum augum þar sem slík atvik geta haft alvarlegar afleiðingar. Tekið hefur verið á málinu innan Stjörnunnar, og hafa forráðamenn deildarinnar og þjálfarar átt samtal við leikmanninn og undirstrikað alvarleika málsins. Niðurstaðan er sú að Fannar mun tímabundið ekki bera fyrirliðabandið fyrir hönd Stjörnunnar. Það er von Kkd Stjörnunnar að þar með sé þessu máli lokið."
Dominos-deild karla Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira