Handbolti

Rut og Þórey nálgast bronsið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rut í leik með íslenska landsliðinu.
Rut í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Pjetur
Þórey Rut Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir skoruðu sitt markið hvor þegar að lið þeirra, Team Tvis Holstebro, vann fyrri leikinn gegn Midtjylland um bronsverðlaun dönsku úrvalsdeildarinnar.

Lokatölur voru 26-24 fyrir Team Tvis sem lenti þó mest fimm mörkum undir í leiknum, 14-9.

Síðari leikurinn fer fram í Holstebro um helgina og dugir þá heimamönnum jafntefli til að tryggja sér bronsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×