Íslenski boltinn

Atli Eðvaldsson ráðinn trúnaðarmaður Suðvesturlands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Eðvaldsson.
Atli Eðvaldsson. Mynd/Arnþór
Atli Eðvaldsson er aftur kominn á fullt inn í íslenska knattspyrnu því hann er kominn heim frá Þýskalandi og er tekinn við sem trúnaðarmaður KSÍ á Suðvesturlandi. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

KSÍ hefur komið á fót verkefni þar sem trúnaðarmenn eru ráðnir til landshlutanna. Miðar verkefnið að því að auka samskipti og samráð við þjálfara aðildarfélaga, færa þjónustu nær aðildarfélögum, meta efnilega leikmenn og fylgja eftir efnilegum leikmönnum í samráði við félögin.

Atli er öllum knattspyrnuáhugamönnum vel kunnur en hann hefur síðustu misseri verið í Þýskalandi þar sem hann fékk UEFA Pro þjálfararéttindi. Áður höfðu Pétur Ólafsson verið ráðinn fyrir Norðurland og Eysteinn Húni Hauksson fyrir Austurland. Eyjólfur Sverrisson mun hafa yfirumsjón með verkefninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×