Handbolti

Guðjón Valur: Gærkvöldið var mjög erfitt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson átti góðan seinni hálfleik með AG þegar að liðið tryggði sér bronsið í Meistaradeild Evrópu, eftir sigur á Füchse Berlin.

„Ég er alltaf ánægður með að vinna," sagði Guðjón Valur við Vísi en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Þetta var leikur sem skipti miklu máli og snerist meira um að skemmta því fólki sem kom í höllina. Þeir höfðu yfir meira að kvarta í dómgæslunni, svipað og hjá okkur í gær, en við skulum bara segja að við skoruðum fleiri mörk í dag."

Hann segir að vonbrigðin eftir tapleikinn gegn Atletico í undanúrslitin í gær hafi verið mikil.

„Gærkvöldið var erfitt. Hljóðlátt og mjög erfitt. Við ætluðum okkur að fara auðvitað alla leið en maður þarf að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti," sagði Guðjón Valur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×