Handbolti

Arnór: Kenni ekki dómurunum um

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
„Mér líður eins illa og hægt er," sagði Arnór Atlason eftir tap AG fyrir Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag.

„Við vorum nálægt þessu, þannig séð. Við vorum yfir í 45 mínútur og þetta var ótrúlega svekkjandi."

„Ég ætla ekki að segja það opinberlega að dómararnir hafi tekið þetta af okkur en við hefðum mögulega 1-2 dóma með okkur. Við klúðruðum færum og þessar brottvísanir sem við fáum á okkur í seinni hálfleik voru rosalega dýrar."

Viðtalið við Arnór má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×