Íslenski boltinn

Haukar á toppi 1. deildar eftir sigur á Þór

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Jóhannesson er þjálfari Hauka.
Ólafur Jóhannesson er þjálfari Hauka.
Enok Eiðsson var hetja Hauka sem lögðu Þór að velli í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. Enok Eiðsson skoraði eina mark leiksins á 17. mínútu.

Haukar eru eftir sigurinn með sjö stig í efsta sæti deildarinnar. Þór, sem hafði unnið báða leiki sína í deildinni þar til í dag, er í öðru sæti með sex stig.

Þá vann Tindastóll sinn fyrsta sigur í sumar þegar liðið sótti BÍ/Bolungarvík heim á Torfnesvöll. Lokatölurnar urðu 5-2 gestunum í vil.

Með sigrinum lyftu Stólarnir sér úr fallsæti. Liðið situr í 8.-9. sæti ásamt ÍR með þrjú stig. BÍ Bolungarvík er í 10. sæti með tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×