Handbolti

Ólafur: Verð að lifa með þessu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Ólafur Stefánsson fékk að svara tveimur spurningum frá blaðamanni Vísis áður en fjölmiðlafulltrúi AG þurfti að fara með hann á blaðamannafund.

Ólafur var í aðalhlutverki þegar að lið hans, AG, tapaði með tveggja marka mun fyrir Atletico MAdrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag.

„Við vorum með þetta í hendi okkar en þeir komust aftur inn í leikinn eftir að við fengum nokkra brottrekstra á okkur. Þá var þetta erfitt fyrir okkur," sagði Ólafur.

„Við fengum svo mjög vafasama dóma á okkur í lokin og ég átti tvær vafasamar sendingar auk þess sem að ég fékk dæmdan á mig ruðning. Ég verð að lifa með því."

„Það var erfitt að spila gegn þeim. Ég á að þekkja þeirra styrkleika og veikleika og á að geta gert betur," sagði Ólafur áður en hann þurfti að rjúka í burtu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×