Handbolti

Alfreð: Verðum ekki meistarar með svona frammistöðu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, mun á morgun leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu eftir sigur hans manna á Füchse Berlin í dag.

Hann var ánægður með frammistöðuna en sá margt sem hefði mátt betur fara í leik sinna manna.

„Við byrjuðum frábærlega en Berlín og Dagur hafa sýnt mikinn karakter í allan vetur og komu til baka," sagði Alfreð en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Berlín hékk mikið á boltanum og reyndi að spila langar sóknir. Við duttum í að spila sama boltann. Svo bætist það ofan á að Stochl í markinu ver frábærlega eftir að hann kom inn á í fyrri hálfleik. Hann var með um 20 varin skot en mínir menn um níu sem er of lítið."

„Það er alveg á hreinu að við þurfum að spila mun betur á morgun. Við verðum ekki meistarar með svona frammistöðu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×