Handbolti

Dagur: Stoltur en svekktur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Dagur Sigurðsson sagðist vera stoltir af sínum mönnum þrátt fyrir tap Füchse Berlin fyrir Kiel í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir tap sinna manna fyrir Kiel.

„Við hefðum getað stolið þessu í lokin. Eftir fyrstu fimmtán mínúturnar breyttist leikurinn og var meira okkur í hag þó svo að þetta hafi verið erfitt og Kiel með forystuna nánast allan leikinn."

„Engu að síður var þetta frábær frammistaða hjá strákunum," sagði Dagur en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Alexander átti frábæran leik og margir sem stóðu sig vel. Helst voru það hornin sem brugðust hjá okkur og erum við ekki vanir því. En heilt yfir getum við verið stoltir af þessu en erum um leið svekktir."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×